Bláa lónið
Framkvæmdir að byggingu Bláa lónsins hófust í júlí 1998 og þeim lauk í júlí 1999. Bláa lónið þykir ein mesta náttúrufegurð landsins og er fyrirtækið mjög stollt yfir því að eiga svo stóran þátt í framkvæmdum að þessari vinsælu heilsulind. Húsið er að hluta til á tveimur hæðum. Við hönnun þess var lögð megin áhersla á samspil nútímatækni og einstæðrar náttúru en byggingin er lögð í hraunjaðar Illahrauns. Frá bifreiðastæði gesta aðaðalinngangi hússins er gengið u.þ.b. tvöhundruð metra í hraungjá. Við tekur manngerður hraunveggur sem er leiðandi í gegnum forsal og veitingaraðstöðu, út á verönd við sjálft baðlónið og tengir húsið ósnortinni hraunbrún sem umlykur baðlónið. Úr forsal er gengið í búnings- og baðaðstöðu, veitinga- og ráðstefnusal og ferðamannaverslun. Í gegnum glervegg forsalar- og veitingaaðstöðu blasir við útsýni yfir baðsvæðið sem er um 5.000 fermetrar að stærð. Byggingin sjálf er um 2.700 fermetrar að stærð. Arkitekt að húsinu var VA Arkitektar.