Flughermir Icelandair að taka á sig mynd
Á Flugvöllum í Hafnarfirði er unnið af kappi við að setja saman Boeing 757 flughermi sem nýttur verður í ný- og endurþjálfun flugmanna Icelandair.
Rúmlega 300 flugmenn starfa hjá Icelandair og fara þeir a.m.k. tvisvar sinnum á ári í flugherminn.
Ljóst er að þetta sparar þjóðarbúinu milljónir í gjaldeyri.
Byggingastjóri er Oddur H. Oddson.