Fræðslustjóri að láni til ÍAV
Nýlega var undirritaður samningur um Fræðslustjóra að láni við Íslenska aðalverktaka með aðstoð fræðslusjóðanna Starfsafls, Landsmenntar, SVS (Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks), Rafiðnaðarskólans og IÐUNNAR. Það er Attentus ráðgjöf ehf. sem mun annast ráðgjöfina fyrir sjóðina.
Árangurinn er símenntunaráætlun sem er bæði tíma- og markmiðasett ásamt tillögum að fræðsluaðilum sem geta verið bæði innan og utan fyrirtækis. Sjóðir sem að verkefninu standa taka svo að sér að styrkja fræðslu samkvæmt áætluninni enda er útkoman fræðsla sem er þörf á og skilar árangri, bæði fyrir fyrirtækið og starfsmenn.
Það er sérstakt ánægjuefni að sjá svo marga sjóði koma að þessu verkefni. IÐAN kemur með öflugan stuðning við verkefnið enda flestir starfsmenn félagsmenn í IÐUNNI.
Fræðslustjóri að láni er fyrirtækjum að kostnaðarlausu en fyrirtæki utan Samtaka atvinnulífsins greiða hluta kostnaðar.