Framkvæmdir ganga vel í Sjálandsskóla
ÍAV byggja nú annan áfanga Sjálandsskóla í Garðabæ en fyrsti áfangi, sem ÍAV byggði einnig, var tekin í notkun árið 2005.
Annar áfangi samanstendur af íþróttahúsi, sundlaug, ýmiss konar æfingarsölum ásamt margnota stórum sal sem nýtist m.a. undir mötuneyti og skemmtanir.
Í dag er unnið að því að loka húsinu til að koma hita á sem er mikilvægt fyrir næstu verkþætti innanhúss.
Starfsmenn eru og hafa verið síðastliðna mánuði um 30 manns. Verklok eru í byrjun júlí 2009.