Golfmótaröð SÍAV lokið
Lokamót í golfmótaröð SÍAV (starfsmannafélag ÍAV) fór fram á Garðavelli á Akranesi laugardaginn 18. september. Mótaröðin samanstendur af fimm golfmótum sem haldin eru frá vori og fram á haust. Um er að ræða þrjú punktamót og tvö mót þar sem keppt er með Texas scramble aðferð.
Þátttakendum í golfmótaröðinni hefur fjölagað ár frá ári en að jafnaði taka um 60 manns þátt í golfmótunum. Hér má sjá myndir af sigurvegurum mótaraðarinnar í ár.