Gullengi 4 komið í sölu
Nýverið voru íbúðir í húsi númer 4 við Gullengi settar í sölu. Húsið er þriggja hæða fjölbýlishús, með þremur íbúðum á hæð. Sérinngangur er í hverja íbúð.
Í kjallara eru sérgeymslur íbúða, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými. Hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð. Húsið stendur á góðum stað, nærri allri þjónustu, svo sem skólum og verslunum. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum.
Lóð er frágengin samkvæmt teikningum arkitekta. Þetta hús er sambærilegt húsi númer 6 við Gullengi en þar er verið að selja síðustu íbúðirnar og hefur salan gengið vel.
Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar í Gullengi 4 verði afhentar kaupendum í lok mars á næsta ári.