Hús íslenskra fræða – undirritun samnings
Síðastliðin mánudag var undirritaður samningur á milli ÍAV annarsvegar og Mennta og menningarmálaráðuneytisins og Háskóla Íslands, hinsvegar. Tilboð ÍAV í þessum fyrsta áfanga þ.e. jarðvinnuútboðinu hljóðaði upp á rúmar 98 milljónir króna. Það var Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem tók fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni. Í framtíðinni mun hús íslenskra fræða hýsa stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslensku- og menningardeildir Háskóla Íslands.
Þegar var hafist handa við jarðvinnuframkvæmdir og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í maílok.