Almennar fréttir

13. febrúar 2007

Lágafellsskóli

Í desember 2006 hófu starfsmenn ÍAV byggingu 3. áfanga Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Viðbyggingin er að hluta til á tveimur hæðum, um 1400 fermetrar að gólffleti og er norðaustur af núverandi byggingu, sem byggð var af ÍAV árið 2001. Verkkaupi er Mosfellsbær.

Í verkinu felst fullnaðarfrágangur að innan og utan með föstum innréttingum. Lóð mun einnig vera fullkláruð. Um 20 - 25 manns munu vinna við verkið að jafnaði. Verklok eru áætluð í lok júlí 2007.

Verkefnastjóri er Sigurður Örn Jónsson og byggingastjóri Baldur Reynisson.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn