Nýr brottfararsalur í FLE tekinn í notkun
Síðastliðinn föstudag var tekin í notkun glæsileg fríhöfn ásamt salernisaðstöðu í suðurbyggingu FLE. Fríhöfnin er öll hin glæsilegasta og óhætt er að segja að hreinlætisaðstaðan sé það einnig.
Blöndunartækin í handlaugunum eru hvort tveggja í senn blöndunartæki og þurrktæki. Vatn kemur út um miðjustútinn en heitt loft um hliðarstúta.
ÍAV sá um framkvæmdir fyrir verkkaupann Isavia en ÍAV þjónusta sá um framkvæmdir fyrir rekstraraðilann Fríhöfnina.