Nýr verksamningur
Bjarg Íbúðafélag hses. og ÍAV undirrituðu þann 10. maí 2019 verksamning sem felur í sér að ÍAV byggi og afhendi 99 almennar leiguíbúðir í samtals í fjórum 2-5 hæða blokkum með 6 stigagöngum. Blokkirnar munu rísa við Hraunbæ í Reykjavík
Samningsform er fast heildarverð.
Blokkirnar verða afhentar í þremur áföngum:
- 13. október 2020
- 8. desember 2020
- 12. febrúar 2021
Verkefnastjóri verður Leó Jónsson, byggingaverkstjóri Skúli Bjarnason og tæknimaður Karol Zentana.
Miðað er við að jarðvegsframkvæmdir og aðstöðusköpun hefjist í lok maí 2019.
Samningsferlið er byggt á reynslu af sambærilegu verkefni á Móavegi, þ.e. að samningsundirritun er niðurstaða af forhönnunarferli verkkaupa, verktaka og hönnuða sem hófst þann 9. janúar 2019.