Samningur milli ÍAV og Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar
Samningur var undirritaður í gær milli ÍAV og Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar um hönnun og byggingu íþróttaaðstöðu fyrir íþróttafélagið Ármann í Laugardal. Húsið verður félagsaðstaða Ármanns ásamt fimleika- og bardagasölum og liggur að núverandi húsi Þróttar. Húsið verður á tveimur hæðum og um 3.200 m2 að stærð.
Framkvæmdir hefjast næstu daga og er áætlað að ljúka haustið 2006.