Skóflustunga að fjölnota íþróttahúsi
Föstudaginn 3. maí sl. var tekin skóflustunga að byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýrinni í Garðabæ.
Í lok síðasta árs var auglýst eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á fjölnota íþróttahúsi í landi Vífilsstaða í Garðabæ. Tilboð Íslenskra aðalverktaka skoraði hæst með tilliti til gæða og verðs og var verksamningur milli Garðabæjar og Íslenskra aðalverktaka um hönnun og byggingu á nýju fjölnota íþróttahúsi í Garðabæ undirritaður í desember á síðasta ári og hönnun hófst í byrjun þessa árs.
Fjölnota íþróttahúsið verður með rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð innanhúss auk upphitunaraðstöðu ásamt tilheyrandi stoðrýmum. Stærð íþróttasalarins verður um 80x120 m með anddyri og öðrum stoðrýmum er flatarmál hússins um 18.200m². Gert er ráð fyrir að verklok verði í apríl 2021