Smáraflöt Akranesi
Unnið er að byggingu 12 íbúða fjölbýlishúss við Smáraflöt 3. Í dag er verið að reisa 2 önnur fjölbýli og búið er að byggja raðhús við sömu götu. Smáraflöt 3 er þriggja hæða hús með 4 íbúðum á hæð. Sér inngangur er í hverja íbúð. Íbúðirnar verða afhentar full frágengnar, parket á gólfum, en flísar á anddyris- geymslu-, baðherbergis- og þvottahúsgólfum.
Sameign og lóð skilast fullfrágengin og snjóbræðsla verður í hluta hellulagðra stétta.