Almennar fréttir

26. september 2005

Stækkun Grand Hótels Reykjavík hafin

Vinna við byggingu 14 hæða viðbyggingar við Grand hótel Reykjavík er hafin.Byggingin samanstendur af kjallara, 12 fullum hæðum, inndreginni hæð og hæð sem skilur húsin í tvær einingar.Gert er ráð fyrir nýjum aðalinnangi, gestamóttöku sem tengist yfirbyggðum innigarði, þjónusturýmum í kjallara og á fyrstu hæð, hótelherbergjum á 1. til 13. hæð og tæknirýmum á efstu hæð. Í byggingunni verða 212 herbergi.Þann 23. september var fyrsta skóflustungan tekin og hófust framkvæmdir í beinu framhaldi.

Verklok eru áætluð í mars 2007.

 

 

 

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn