Starfsmenn ÍAV klæðast bleiku í tilefni dagsins
Í tilefni árvekniátaks Krabbameinsfélags Íslands voru allir starfsmenn ÍAV hvattir til að klæðast bleiku í tilefni dagsins.
Krabbameinsfélagið vekur athygli á brjóstakrabbameini árlega með ýmsum hætti. Í ár hvatti Krabbameinsfélagið starfsmenn fyrirtækja til að sýna samtöðu og mæta í bleikum fötum í vinnuna. Að sjálfsögðu létu starfsmenn ÍAV sitt ekki eftir liggja og klæddust fagurbleiku frá toppi til táar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.