Almennar fréttir

10. ágúst 2005

Sundlaug á Eskifirði

ÍAV hófu framkvæmdir við byggingu sundlaugar á Eskifirði í byrjun júní.

Um er að ræða 25 metra útisundlaug, rennibrautarlaug, vaðlaug, tvo heita potta og aðalbyggingu. Aðalbyggingin verður tæplega 540 fermetar að stærð auk gufu og kjallara, samtals rúmlega 1.100 fermetrar.

Áætluð verklok eru í mars 2006 og munu 25 manns vinna við verkið að jafnaði.

Verkefnastjóri er Guðgeir Sigurjónsson og byggingarstjóri er Jón Grétar Traustason.

 

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn