Almennar fréttir

01. desember 2007

Til hamingju með Háskólatorg

Þann 1. desember var Háskólatorg afhent Háskóla Íslands. ÍAV ásamt arkitektastofunum Hornsteinum arkitektum og TIS teiknistofu urðu hlutskarpastir í lokaðri samkeppni verktaka og hönnuða um Háskólatorg sem fram fór sumarið 2005. Í framhaldi af því var gengið til samninga og í apríl 2006 hófu Íslenskir aðalverktakar framkvæmdir.

Háskólatorg er samheiti tveggja bygginga ásamt tengibyggingu sem hlotið hafa nöfnin Háskólatorg, Gimli og Tröð. Heildar flatarmál bygginganna er tæpir 10.000 fermetrar. Verklok síðari áfanga verða í lok febrúar n.k.

Háskólatorg verður vinnustaður á þriðja hundrað starfsmanna deilda og þjónustustofnana og verða þar rúmlega 1.500 stúdentar við nám og störf. Daglega munu nokkur hundruð gesta heimsækja Háskólatorg.

Háskólatorg leysir úr brýnni þörf Háskólans fyrir vinnuaðstöðu starfsmanna og nemenda. Í báðum byggingunum er gert ráð fyrir les- og vinnuaðstöðu fyrir á fjórða hundrað stúdenta í grunn- og framhaldsnámi úr öllum deildum skólans. Allt innra fyrirkomulag í nýbyggingunum einkennist af miklum sveigjanleika til að þjóna óskum á hverjum tíma um tengsl og samþættingu, eða þegar starfsemi breytist.

Íslenskir aðalverktakar óska nemendum og starfsfólki til hamingju með áfangann.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn