Til viðskiptavina ÍAV þjónustu ehf.
Kæri viðskiptavinur,
Frá og með 1. janúar 2015 verður ÍAV þjónusta ehf. kt. 651005-0430 sameinuð Íslenskum aðalverktökum hf. (ÍAV hf.) kt. 660169-2379. Sameiningin markar lok þeirrar endurskipulagningar sem ÍAV samstæðan hefur gengið í gegnum á árinu.
Allar skuldbindingar ÍAV þjónustu ehf. flytjast að fullu til ÍAV hf. og þar með talið allir starfsmenn og allar útistandandi viðskiptakröfur og viðskiptaskuldir. Öll viðskiptakjör viðskiptavina ÍAV þjónustu ehf. flytjast óbreytt yfir til ÍAV hf.
Verkefni og samningar sem ÍAV þjónusta ehf hefur sinnt fyrir viðskiptavini sína munu falla undir umsjón Þjónustusviðs ÍAV og verða þau áfram undir stjórn Guðmundar Péturssonar og hans starfsmanna.
Ef einhverjar spurningar vakna varðandi þessar breytingar, hikið þá ekki við að hafa samband við undirritaða með tölvupósti eða í síma.
Þóroddur Ottesen thoa@iav.is 530 4230
Framkvæmdastjóri fjármála
Guðmundur Pétursson gummip@iav.is 617 8900
Verkefnastjóri þjónustu
Með þökk fyrir viðskiptin á árinu og ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Karl Þráinsson
forstjóri Íslenskra aðalverktaka hf.