Tveimur kílómetrum náð í Bolungarvíkurgöngum
Vinna við gröft Bolungarvíkurganga gengur vel. Frá Hnífsdal voru sprengdir 49 metrar í síðustu viku og er heildarlengd þeim megin orðin 986 metrar. Frá Bolungavík voru sprengdir 42 metrar og er heildarlengd þeim megin frá orðin 1.033 metrar.
Samtals er því búið að sprengja 2.019 metra eða tæplega 40% af heildarlengd ganganna sem verða 5.1 kílómetri að lengd. Áætlað er að búið verði að sprengja göngin um mánaðarmótin júlí / ágúst.