Undirritun samnings um byggingu íbúða í 201 Smára.
Þann 29. apríl undirrituðu ÍAV og Smárabyggð samning um byggingu 57 íbúða auk bílageymslu í 201 Smára.
Framkvæmdir hefjast í byrjun maí og verður lokið í desember 2018.
Hafsteinn Jónsson og Hjálmar Örn Guðmarsson verða verkefnisstjórar og Arnbergur Þorvaldsson verður byggingastjóri.
Samningsaðilar stefna að hefja framkvæmdir á næsta reit A02 með um 65 íbúðum síðar í sumar.
Á myndinni eru Sigurður Ragnarsson og Ingvi Jónason.