Undirritun verksamnings við Sorpu
Í dag 6. október 2016 undirrituðu ÍAV og Sorpa verksamning um undirbúning urðunar í rein 20 í Álfsnesi.
Helstu verkþættir eru sprengigröftur 385.000 m³ og mölun bergs 50.000 m³.
Verkið er hafið og eru verklok áætluð 31. mars 2017.
Á myndinni eru Björn H. Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu og Sigurður Ragnarsson forstjóri ÍAV.