Almennar fréttir

04. febrúar 2013

Undirskrift vegna Vaðlaheiðarganga

Á föstudaginn var skrifað undir samninga við ÍAV og Martium gerð Vaðlaheiðarganga. Vaðlaheiðargöng verða 7,5 kílómetra löng með vegskálum beggja vegna. Göngin munu stytta Hringveginn um 16 kílómetra og áætluð umferð við opnun ganganna er um 1400 bílar á sólarhring.

Vinna hefst strax við undirbúning framkvæmda en reiknað er með að byrjað verði að sprengja í vor Eyjafjarðarmegin en ári síðar úr Fnjóskadal. Áætluð verklok við göngin verði 2016.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn