Almennar fréttir

08. maí 2004

Verslunarmiðstöð á Egilsstöðum opnuð

Laugardaginn 8. maí var ný og glæsileg verslunarmiðstöð opnuð við Miðvang 13 á Egilsstöðum. ÍAV hófu byggingu hússins, sem er 1.800 fermetra stálgrindarhús í október sl. Um 20 manns unnu við verkið að jafnaði en byggingartíminn var mjög stuttur og gekk verkið mjög vel í alla staði. Lokaúttekt byggingafulltrúa fór fram áður en húsið var opnað og telst byggingin úttekin af öllum lögaðilum.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn