ÍAV afhendir nýtt hótel
Hótel Reykjavík Centrum á horni Aðalstrætis og Túngötu opnaði formlega þann 1. apríl. Hótelið er 3.700 fermetrar að stærð á þremur til fjórum hæðum með samtals 89 íbúðum. Hótelið er að luta enduruppgerð á sögufrægum húsum; Uppsölum, Aðalstræti 16 og Fjalakettinum. Í kjallara hótelsins er í byggingu 1.100 fermetra sýningarskáli með elstu mannsvistarleifum í landinu. Áætlað er að opna sýningarskálann vorið 2006. Starfsmenn ÍAV hófu byggingu hótelsins í janúar 2004.