ÍAV afhendir Pennanum hf. lyklana að nýju húsnæði
Þann 13.júní síðastliðinn var Ingþóri Ásgeirssyni framkvæmdastjóra verslunarsviðs Pennans og Guðríði Sigurðardóttur starfsmannastjóra Pennans afhentir lyklar að 1.500 fermetra framtíðarskrifstofuhúsnæði Pennans á annarri hæð í nýju skrifstofubyggingunni í Glæsibæ. Penninn hyggst færa skrifstofur sínar þangað á næstu vikum. Frá ÍAV voru viðstaddir Kristján Arinbjarnar framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, Jón Örn Jakobsson verkefnastjóri, Guðmundur Pálsson skrifstofustjóri og Össur Friðgeirsson byggingastjóri. ÍAV á húsnæðið og leigir út.
Penninn ehf. á og rekur verslanir Eymundsson og Pennans, ásamt verslun Saltfélagsins og rekur ásamt þeim kaffihús undir nafninu Te og Kaffi. Auk þess á Penninn helmingshlut í Habitat á Íslandi, meirihluta í húsgagnafyrirtækinu Coppa í Lettlandi, meirihluta í GH ljósum í Garðabæ, rekstrarvörukeðjuna Officeday sem starfar í Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen og kaffiframleiðandann Melna Kafija ásamt því að eiga meirihluta í Insomnia kaffihúsakeðjunni sem starfrækt er á Írlandi.
Byrjað var að byggja nýju skrifstofubygginguna í mars 2006, en byggingin er um 10.000 fermetrar að stærð á 8 hæðum auk kjallara á 2 hæðum. Hreyfing og Bláa Lónið hófu starfsemi sína í byggingunni um áramótin og eru á þremur neðstu hæðum hússins (tveimur kjallarahæðum og fyrstu hæð). Sjónlag mun hefja starfsemi á fimmtu hæð í húsinu í haust eða byrjun vetrar og læknastofur verða opnaðar á þriðju og fjórðu hæðinni í vetur.