ÍAV byggir grunnskóla í Garðabæ
Undirritaður hefur verið samningur um að ÍAV byggi Sjálandsskóla, nýjan grunnskóla fyrir Sjálands- og Grundarhverfi í Garðabæ. Verkið felst í uppsteypu og frágangi að utan og innan á fyrsta áfanga skólans sem verður tæplega 4.000 fermetrar að grunnfleti. Skólinn verður að meginhluta á tveimur hæðum.
Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að um 15 starfsmenni muni vinna við bygginguna í upphafi verks en þeim fjölgi í 60 manns þegar mest verður. Björgúlfur Pétursson er verkefnastjóri og Ísleifur Sveinsson byggingarstjóri. Verklok eru áætluð 1. júlí 2005.