ÍAV er aðalverktaki við breytingar á húsnæði Regins fyrir Vegagerðina
Þann 27. mars sl. var undirritaður verksamningur milli ÍAV og Regins vegna framkvæmda við nýjar höfuðstöðvar Vegagerðarinnar sem verða í Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Núverandi bygging þar verður rifin að hluta og endurbyggð að hluta. Gert er ráð fyrir 2.500m2 geymsluhúsnæði ásamt 3.500m2 skrifstofubyggingu á þremur hæðum. Verklok eru áætluð í febrúar 2021. Myndin sýnir fyrirhugað útlit hússins eftir breytingar.
(Mynd:Vegagerðin.is)