ÍAV er aðalverktaki við byggingu baðlóns á Kársnesi í Kópavogi
Nature Resort ehf. og ÍAV hf. undirrituðu 30. janúar 2020 verksamning sem felur í sér að ÍAV verður aðalverktaki við uppbyggingu á baðlóni fyrir Nature Resort ehf. við Vesturvör á Kársnesi í Kópavogi. Samningsform er stýriverktaka. Hlutverk ÍAV er að stýra uppbyggingu á baðlóni við sjóinn, kaldri laug og gufuböðum. Nýbyggingin, sem verður á tveimur hæðum, mun meðal annars hýsa móttöku, búningsklefa, veitingasölu og verslun, auk ýmis stoð- og tæknirými. Jarðvinnuframkvæmdir og lagnavinna í jörðu hófust haustið 2019 á vegum verkkaupa. Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritunina, á henni eru í fremri röð, f.v. Eyþór Guðjónsson og Gestur Þórisson aðaleigendur Nature Resort ehf. , Sigurður Ragnarsson forstjóri ÍAV. Í aftari röð eru starfsmenn ÍAV, talið f.v. Haukur Magnússon, Oddur Helgi Oddsson, Ólafur Már Lárusson, Andrea Ösp Viðarsdóttir og Kristján Arinbjarnar. Á myndina vantar Sigurjón Jónsson verkefnisstjóra. Nánari upplýsingar veitir Gestur Þórisson í síma 862-0304.