ÍAV Vetrarmýri tekur á sig mynd
Framkvæmdir ÍAV eru í fullum gangi í Vetrarmýrinni þar sem reist verður fjölnotaíþróttahús fyrir Garðabæ.
Í húsinu verður rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð, auk upphitunaraðstöðu og tilheyrandi stoðrýma. Stærð íþróttasalarins verður um 80 x 120 metrar og flatarmál hússins alls verður um 18.200 fermetrar.
Uppsetning á stálrömmum fyrir húsið er að ljúka þessa dagana og stefnt er að því að klára uppsteypu um miðjan mars nk.
Nú þegar er búið að steypa rúmlega 4.800m3.
Grundun hússins er á staurum og telja þeir 437 staura sem voru að meðaltali 9metra langir, lengsti var 15 metrar.
Verklok eru áætluð í árslok 2021.