Hagnaður af rekstri ÍAV hf. árið 2003 að teknu tilliti til skatta nam 662 milljónum króna
Á stjórnarfundi Íslenskra aðalverktaka hf. þann 24. mars 2004 var ársreikningur fyrir árið 2003 staðfestur. Ársreikningur Íslenskra aðalverktaka hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. Hann er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
Smelltu hér til að sækja uppgjör ársins 2003
Rekstrartekjur samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. námu 7.747 milljónum króna á ársinu 2003, samanborið við 7.947 milljónir króna á ársinu 2002. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) var 632 milljónir króna, samanborið við 522 milljónir króna á árinu 2002.