Nýir vefir
Í framhaldi af skipulagsbreytingum sem kynntar voru um síðustu áramót er verið að leggja lokahönd á smíði vefa fyrir ÍAV, ÍAV Fasteignaþjónustu og ÍAV Námur.
ÍAV hf., er stærsta dótturfélag Íslenskra aðalverktaka ehf. ÍAV hf. starfar á almennum verktakamarkaði en forstjóri félagsins er Karl Þráinsson. ÍAV hf. sér einnig um að veita öðrum félögum innan samstæðunnar margvíslega stoðþjónustu svo sem á sviði bókhalds og fjármála.
ÍAV Fasteignaþjónusta ehf., tók til starfa um áramótin. Framkvæmdastjóri þess er Kristján Arinbjarnar. Félagið starfar á viðhaldsmarkaði fasteigna og að verkefnum tengdum fasteignaþjónustu. Félagið tekur einnig þátt í útboðum sem henta starfsemi félagsins.
ÍAV námur ehf., er félag sem tók til starfa í byrjun ársins. Félagið sér um rekstur á námum sem áður heyrðu undir starfssemi ÍAV. Fyrst um sinn mun Eyjólfur Bjarnason stýra ÍAV námum ehf.