Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Heilsugæslunnar
Forsvarsmenn Háskóla Íslands og Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa undirritað fimm ára samstarfssamning um kennslu og vísindamálefni. Tilgangurinn með samningnum er að efla samstarf Háskóla Íslands og heilsugæslunnar í því skyni að nýta sem best þá sérþekkingu, kunnáttu, efnivið og aðstöðu sem samningsaðilar hafa yfir að ráða.
Með samningnum er samstarf heilsugæslunnar og heilbrigðisvísindadeilda H.Í., sem meðal annars felst í klínískri kennslu lækna- og hjúkrunarfræðinema á heilsugæslustöðvum, skilgreint og það fellt í ákveðið form.
Meginmarkmið samningsins eru:
- Að auka hlutfall ungs fagfólks í heilsugæslunni.
- Að starfsfólk heilsugæslunnar annarsvegar og nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands hins vegar hafi greiðan og gagnkvæman aðgang að sérþekkingu.
- Að stuðla að framgangi vísindarannsókna heilbrigðisstétta tengdum heilsugæslu.
Undirritunin fór fram á Heilsuverndarstöðinni miðvikudaginn 7. desember 2004. Auk Heilsugæslunnar í Reykjavík, Heilsugæslunnar Kópavogi, Heilsugæslunnar Seltjarnarnesi og Heilsugæslustöðvar Mosfellsumdæmis eiga Heilsugæslan Hafnarfirði og Heilsugæslan Garðabæ aðild að samningum