ÍAV Holding ehf
ÍAV Holding ehf. er eignarhaldsfélag sem heldur utanum eignarhald félaga sem flest starfa í verktakastarfsemi eða tengdum rekstri.
ÍAV Holding er móðurfélag eftirfarandi félaga:
ÍAV hf.
ÍAV hf. er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki Íslands og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða, jarðvinnu, gatnagerð, jarðgangnagerð, opinberar byggingar atvinnuhúsnæði eða íbúðarhúsnæði.
ÍAV Þjónusta ehf.
Er fyrirtæki með megin áherslu á fasteignaþjónustu, viðhaldsvinnu og endurbætur á fasteignum, með sérstaka áherslu á verkefni tengd mannvirkjum á Ásbrú (gamla varnarsvæðinu á Miðnesheiði). Megin starfsemi félagsins er á Reykjanesi, en félagið sinnir einnig sérhæfðum verkefnum og stjórnun verka á öðrum stöðum á Íslandi. Starfsmenn félagsins hafa yfir að ráða viðamikilli þekkingu á byggingum og öðrum mannvirkjum á Ásbrú. Starfsmenn félagsins eru einnig sérþjálfaðir til að vinna með efni á borð við Asbest og að fjarlægja ýmis konar spilliefni í samstarfi við innlenda sem erlenda sérfræðinga.
ÍAV Fasteignaþjónusta ehf.
Er fyrirtæki með megin áherslu á fasteignaþjónustu, þ.e. rekstur fasteigna, viðhaldsvinnu og endurbætur á fasteignum. Einnig sérhæfir fyrirtækið sig í þjónustu og ráðgjöf tengdri viðhaldsvinnu og endurbótum á fasteignum ásamt því að verkefnastýra og sjá um framkvæmdir á smærri verkefnum við húsbyggingar.. Megin starfsemi félagsins er á Höfuðborgarsvæðinu, en félagið sinnir einnig sérhæfðum verkefnum og stjórnun verka á öðrum stöðum á Íslandi.
ÍAV Námur ehf.
Er félag sem sérhæfir sig í efnistöku og námuvinnslu.Félagið rekur þrjár efnisvinnslur, í Lambafelli í Þrengslum, Stapafelli og Rauðamel á Reykjanesi. Vörur sem félagið selur eru sandur af mismunandi grófleika ásamt grófara efni til vegagerðar og fyllinga.
Skólar ehf.
Félag sem sérhæfir sig í rekstri leikskóla, félagið rekur fimm leikskóla. Sjá nánar á www.skolar.is
Eigendur ÍAV Holding ehf. eru Marti frá Sviss.