Verkflokkur

02. október 2006

Bygging frystigeymslu á Höfn

Nýverið undirrituðu ÍAV og Skinney Þinganes samning um byggingu nýrrar frystigeymslu og tengibyggingu á Höfn í Hornafirði.  Frystigeymslan verður um 1.300 fermetrar og tengibyggingin um 600 fermetra og verða byggð á athafnasvæði Skinneyjar Þinganess á Höfn í Hornafirði.  Verkið er hafið og eru verklok áætluð í mars 2007.  Um 10-15 manns munu vinna við verkið að jafnaði.  Verkefnastjóri verður Guðgeir Sigurjónsson og byggingastjóri Gísli Lúðvík Kjartansson.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn