Smáralind stýriverktaka
Breyta á um 6000 m2 rými, rif og uppsetning veggja, lagnir, loftræsing, sameiginlegt rými, raflagnir, lýsing og fleira.
Fyrsti hluti af þremur felst í eftirfarandi breytingum á verslunarmiðstöðinni Smáralind:
- Verslun Hagkaupa í austurenda á 1.hæð verður minnkuð um tæpa 4.000m2 og svæðið sem því nemur endurskipulagt til útleigu nýrra verslunarrýma og gönguleiðar.
- NA-inngangur og inngangur B (áður inngangur í Hagkaup) á 1.hæð verða sameinaðir og færðir til í samræmi við færslu gönguleiðar.
- Ný verslunarrými verða skipulögð á 1.hæð, samtals um 12 verslunarrými
- Gert er ráð fyrir nýjum, björtum og rúmgóðum glerinngangi til NA í stað núverandi innganga eins og fyrr er lýst.
- Almenningssvæði endurskipulögð, flæði og innra skipulag bætt m.t.t. aukningar á sölu- og setusvæðum án þess þó að hamla flæði eða valda þrengslum
Uppsetning á verslunarrými fyrir H&M í vesturenda Smáralindar á fyrstu og annari hæð þar sem verslun Debenhams var áður til húsa. Inngangur inní verslun tekinn í burtu og inngangur frá bílastæðu Smáralindar við hliðina á versluninni endurhannaður. Svæði breytinga telur rúmlega 5.000 m2
- Opi mill hæða, þar sem rennistigar hafa verið í rými Debenhams, er lokað en nýtt op gert innst í rýminu.
- Ný lyfta sett milli hæða fyrir viðskiptavini í austanvert rými verslunarinnar.
- H&M home verlun sett upp fyrstu hæð og er samtengd við H&M, nýr inngangur bætt við í göngugötu Smáralindar.
Verkkaupi | Smáralind ehf |
Verk hafið | 1 apríl 2016 |
Verklok | 30 nóvember 2016 |
Arkitektar | ASK arkitektar |
Burðarþolshönnun | Verkís |
Lagnir og loftræstikerfi | Verkís |
Raflagnahönnun | Mannvit |
Eftirlit | VSB |
64.101130, -21.884961|/media/161252/Smaralind_03.jpg?width=250&height=109&mode=crop|Smáralind stýriverktaka|/starfsemi/verk/fyrri-verk/idnadar-og-verslunarhus/smaralind-stýriverktaka/| Breyta á um 6000 m2 rými, rif og uppsetning veggja, lagnir, loftræsing, sameiginlegt rými, raflagnir, lýsing og fleira.|terrain | blue | Nánar